Samningar milli Ljóssins og Sjúkratrygginga Íslands um niðurgreiðslu á þjónustu hafa verið lausir frá því um áramót og hefur fyrri samningur verið framlengdur í þrjá mánuði í senn.
„Við erum að vinna að endurnýjun á heildarsamningi milli Ljóssins og Sjúkratrygginga Íslands. Það ferli gengur hægt en við vonumst til að nýr samningur líti dagsins ljós sem allra fyrst, svo við þurfum ekki að skera niður og takmarka aðgang að þessari nauðsynlegu heilbrigðisþjónustu,“ segir Erna Magnúsdóttir, iðjuþjálfi og framkvæmdastýra Ljóssins.
„Það er ekkert annað sambærilegt endurhæfingarúrræði á Íslandi eins og Ljósið, og við höfum heldur ekki fundið neitt sambærilegt erlendis, þar sem fólk fær stuðning án þess að vera í beinni innlögn. Ljósið er þverfaglegt endurhæfingarúrræði þar sem margar fagstéttir koma að endurhæfingunni,“ segir Guðrún Friðriksdóttir iðjuþjálfi.
Lesa má meira um málið í Morgunblaðinu í dag.