Lilja Dögg Alfreðsdóttir, menningar- og viðskiptaráðherra og varaformaður Framsóknarflokksins, leiðir lista flokksins í Reykjavíkurkjördæmi suður.
Í öðru sæti er Einar Bárðarson, sjálfstætt starfandi ráðgjafi, en þriðja sæti skipar Magnea Gná Jóhannsdóttir, borgarfulltrúi og formaður ungs framsóknarfólks í Reykjavík. Fjórða sæti skipar Þorvaldur Daníelsson, framkvæmdastjóri og 1. varaborgarfulltrúi flokksins og í fimmta sæti er Dagbjört S. Höskuldsdóttir, fyrrum kaupmaður og útibússtjóri.
,,Ég er stolt af því að leiða þennan öfluga lista Framsóknar í Reykjavík suður. Listinn er fjölbreyttur og samanstendur af vinnusömu og góðu fólki sem vill láta gott af sér leiða fyrir samfélagið,” er haft eftir Lilju í tilkynningu.
„Stærsta hagsmunamál heimila og fyrirtækja er að ná niður verðbólgu og vöxtum. Það voru jákvæð tíðindi þegar að Seðlabankinn lækkaði vexti með síðustu ákvörðun sinni, en algjört forgangsmál er að tryggja af festu og ábyrgð að sú þróun haldi áfram,“ er jafnframt haft eftir henni í tilkynningu.
Listi Framsóknarflokksins í Reykjavíkurkjördæmi suður í heild sinni:
- Lilja Dögg Alfreðsdóttir Menningar- og viðskiptaráðherra og varaformaður Framsóknar
- Einar Bárðarson Sjálfstætt starfandi ráðgjafi
- Magnea Gná Jóhannsdóttir Borgarfulltrúi og formaður Ungs framsóknarfólks í Reykjavík
- Þorvaldur Daníelsson Framkvæmdarstjóri og 1. varaborgarfulltrúi
- Dagbjört S. Höskuldsdóttir Fyrrum kaupmaður og útibússtjóri
- Ólafur Hrafn Steinarsson Stofnandi Esports Coaching Academy
- Helena Ólafsdóttir Knattspyrnuþjálfari og þáttastjórnandi
- Hafdís Inga Helgudóttir Hinriksdóttir Klínískur félagsráðgjafi MA
- Ágúst Guðjónsson Lögfræðingur
- Aron Ólafsson Markaðsstjóri
- Jóhanna Sóley Gunnarsdóttir Sjúkraliði
- Björn Ívar Björnsson Fjármálastjóri KR
- Ásta Björg Björgvinsdóttir Tónlistarkona og forstöðukona í félagsmiðstöð
- Jón Finnbogason Sérfræðingur
- Emilíana Splidt Framhaldskólanemi
- Stefán Þór Björnsson Viðskiptafræðingur
- Gunnar Guðbjörnsson Óperusöngvari og skólastjóri Söngskóla Sigurðar Demetz
- Lárus Sigurður Lárusson Lögmaður
- Inga Þyrí Kjartansdóttir F.v. framkvæmdastjóri
- Níels Árni Lund F.v. alþingismaður
- Hörður Gunnarsson F.v. ráðgjafi og glímukappi
- Sigrún Magnúsdóttir F.v. ráðherra