Listinn í Reykjavík norður samþykktur

Kristrún leiðir listann.
Kristrún leiðir listann. mbl.is/Hákon

Kristrún Frostadóttir þingmaður og formaður Samfylkingar leiðir lista flokksins í Reykjavík norður.

Dagur B. Eggertsson, læknir og fyrrverandi borgarstjóri, er í öðru sæti. Í þriðja sæti er Þórður Snær Júlíusson blaðamaður og fjórða sætið skipar Dagbjört Hákonardóttir þingmaður.

Í heiðurssætinu er Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, fyrrverandi formaður Samfylkingar og utanríkisráðherra.

Listinn var samþykktur á allsherjarfundi Samfylkingarfélaganna í Reykjavík í dag.

Þórður fékk þriðja sætið.
Þórður fékk þriðja sætið. mbl.is/Hákon

„Ég er virkilega ánægð með sterka framboðslista í Reykjavík sem voru samþykktir rétt í þessu. Ég er í forystusætinu í Reykjavíkurkjördæmi norður og Jóhann Páll Jóhannsson er í forystusæti listans í Reykjavík suður. Þetta er öflugur hópur af fólki úr öllum áttum og við þurfum að ná sem allra flestum þeirra inn á þing til að vinna í þágu almennings,“ er haft eftir Kristrúnu Frostadóttur í tilkynningu.

Framboðslisti Samfylkingarinnar í Reykjavík norður:
1. Kristrún Frostadóttir, þingmaður og formaður Samfylkingarinnar
2. Dagur Bergþóruson Eggertsson, læknir og fyrrv. borgarstjóri
3. Þórður Snær Júlíusson, blaðamaður
4. Dagbjört Hákonardóttir, þingmaður
5. Sigmundur Ernir Rúnarsson, rithöfundur og sjónvarpsmaður
6. Anna María Jónsdóttir, kennari
7. Pétur Marteinn Urbancic Tómasson, lögfræðingur
8. Lilja Hrönn Önnudóttir Hrannarsdóttir, forseti ungs jafnaðarfólks
9. Brandur Bryndísarson Karlsson, frumkvöðull
10. Jelena Bjeletic, leikskólakennari og sjúkraliði
11. Magnea Marinósdóttir, stjórnmálafræðingur
12. Steindór Örn Gunnarsson, húsasmíðanemi
13. Bjarni Þór Sigurðsson, stjórnarmaður VR
14. Alexandra Ýr van Erven, verkefnisstjóri í HR
15. Axel Jón Ellenarson, samskiptastjóri Sameykis
16. Vanda Sigurgeirsdóttir, lektor í tómstunda- og félagsmálafræði við HÍ
17. Einar Kárason, rithöfundur
18. Jóhanna Guðmundsdóttir, hjúkrunarfræðingur
19. Hákon Óli Guðmundsson, verkfræðingur
20. Heiða Björg Hilmisdóttir, borgarfulltrúi og formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga
21. Sigríður Ingibjörg Ingadóttir, hagfræðingur BSRB og fyrrv. alþingismaður
22. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, fyrrv. form. Samfylkingarinnar og utanríkisráðherra

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert