Nafnleynd frekar reglan síðustu ár

Einn sóknarprestur þjónar Reykholtsprestakalli.
Einn sóknarprestur þjónar Reykholtsprestakalli. mbl.is/Sigurður Bogi

Þrjár umsóknir bárust þjóðkirkjunni um stöðu sóknarprests í Reykholtsprestakalli í Vesturlandsprófastsdæmi sem auglýst var nýverið.

María Guðrún Ágústsdóttir, prestur í Fossvogsprestakalli, er einn umsækjenda en tveir umsækjendur óskuðu nafnleyndar.

„Þetta er frekar orðinn vaninn en hitt að umsækjendur óski eftir nafnleynd,“ segir Heimir Hannesson samskiptastjóri þjóðkirkjunnar.

Hann segir að eftir að Alþingi samþykkti ný lög um þjóðkirkjuna fyrir þremur árum, sem skilgreindu presta sem starfsfólk kirkjunnar en ekki embættismenn eða starfsmenn ríkisins, hafi kirkjuþing samþykkt að umsækjendur um störf presta gætu óskað eftir nafnleynd.

Lesa má nánar um málið í Morgunblaðinu í dag, laugardag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert