Björgunarbátar og skip kölluð út vegna skipsstrands

Frá aðgerðum á strandstað í morgun.
Frá aðgerðum á strandstað í morgun. Ljósmynd/Landsbjörg

Klukkan sex í morgun voru björgunarsveitir á norðanverðum Vestfjörðum kallaðar út vegna fiskibáts sem hafði strandað utarlega í Súgandafirði.

Í tilkynningu frá Slysavarnarfélaginu Landsbjörg segir að björgunarbátarnir Stella frá Flateyri, Kobbi Láka frá Bolungarvík og björgunarskipið Gísli Jóns frá Ísafirði héldu þegar á staðinn, ástamt björgunarsveitinni Björg á Suðureyri, sem sendi björgunarfólk landleiðina sem og á slöngubát. Jafnframt var áhöfn þyrlu Landhelgisgæslunnar kölluð út á mesta forgangi.

Frá strandstað í morgun.
Frá strandstað í morgun. Ljósmynd/Landsbjörg

Þegar björgunarfólk kom að bátnum á sjó var ljóst að erfitt yrði að lenda bát í fjörunni við strandaða bátinn. Slöngubáturinn frá Björgu tók einn skipverja Kobba Láka um borð til sín fyrir utan, og náði að lenda í fjörunni aðeins utan við strandaða bátinn og setja þar tvo í land.

Þeir gengu svo að strandstað og náðu að aðstoða þá tvo skipverja í land sem í bátnum voru. Þeir voru nokkuð vel á sig komnir og töldu sig geta rölt í átt að Suðureyri, eða þangað sem bílfært væri.

Freista þess að ná bátnum á flot síðdegis í dag

Þyrla gæslunnar var þá komin vel á veg og var ákveðið að hún myndi hífa skipbrotsmenn úr fjörunni. Þeir voru svo fluttir með þyrlu inn á Suðureyri þar sem lögregla tók á móti þeim til skýrslutöku.

Báturinn liggur enn í fjörunni og verður athugað með að freista þess að ná honum á flot seinni partinn í dag, en háflóð verður um 17.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert