Einn var fluttur á slysadeild til aðhlynningar eftir slagsmál við veitingastað í hverfi 111 í Reykjavík í gærkvöld.
Þetta kemur fram í dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu vegna verkefna hennar frá klukkan 17 í gær til klukkan 5 í morgun.
Tilkynnt var um rúðubrot í grunnskóla í Vesturbænum.
Þá bárust lögreglunni þrjár tilkynningar um grunsamlegar mannaferðir, í hverfum 108, 200 og 203. Ekkert var að sjá þegar lögreglu bar þar að.
Nokkuð var um að ökutækjum væri illa lagt á eða við gangbrautir í hverfi 210. Eigendur þeirra ökutækja mega eiga von á sekt vegna stöðubrota.