Hvalur við Hafnarfjarðarhöfn

Hvalur sást skammt frá Hafnarfjarðarhöfn á fimmta tímanum í gær. Vegfarandi við Sundhöll Hafnarfjarðar kom auga á skepnuna og náði stuttu myndskeiði af henni.

Lúðvík Geirsson, hafnarstjóri Hafnarfjarðarhafnar, segist ekki hafa orðið var við hvali við höfnina sjálfur á síðustu dögum en hann hafi heyrt af komu þeirra og séð myndir og myndskeið á samfélagsmiðlum. 

Starfsmenn á dráttarbátum í höfninni urðu aftur á móti varir við hvali við hafnarmynnið í byrjun síðustu viku. Létu þeir Hafrannsóknastofnun vita í kjölfarið.

Lúðvík rifjar upp að þónokkrir hvalir hafi verið áberandi í höfninni á síðasta ári. 

Þessi tími árs sé þó í fyrra fallinu fyrir hvalakomur, yfirleitt séu hvalir ekki að kíkja í höfnina fyrr en um áramót.

Hvalurinn sást á fimmta tímanum í gær.
Hvalurinn sást á fimmta tímanum í gær. Skjáskot
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert