Þrír voru fluttir á slysadeild eftir þriggja bíla harðan árekstur á Reykjanesbraut við álverið í Straumsvík á áttunda tímanum.
Að sögn Stefáns Más Kristinssonar, varðstjóra hjá slökkviliði höfuðborgarsvæðisins, voru þrír einstaklingar fluttir með sjúkrabifreið á slysadeild og að hans sögn má búast við miklum umferðartöfum en miklar raðir hafa myndast á Reykjanesbrautinni.
Ekki er vitað um líðan þeirra sem slösuðust.