Bergþór oddviti Miðflokksins í Suðvesturkjördæmi

Fjögur efstu á lista Miðflokksins í Suðvesturkjördæmi.
Fjögur efstu á lista Miðflokksins í Suðvesturkjördæmi.

Bergþór Ólason, þingflokksformaður Miðflokksins, skipar efsta sæti á lista flokksins í Suðvesturkjördæmi en hann hefur verið oddviti flokksins í Norðvesturkjördæmi frá árinu 2021.

Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir viðskiptafræðingur er í öðru sæti, en hún er jafnframt systir Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar, formanns flokksins.

Eiríkur S. Svavarsson lögmaður er í þriðja sæti og Anton Sveinn McKee, viðskiptafræðingur og sundkappi, skipar fjórða sætið á listanum.

Listi Miðflokksins í Suðvesturkjördæmi:

1. Bergþór Ólason, alþingismaður

2. Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir, viðskiptafræðingur, MBA

3. Eiríkur S. Svavarsson, lögmaður

4. Anton Sveinn McKee, viðskiptafræðingur

5. Lárus Guðmundsson, markaðsstjóri

6. Lóa Jóhannsdóttir, verkefnastjóri hjá Seðlabankanum

7. Jón Þór Þorvaldsson, flugstjóri

8. Jón Kristján Brynjarsson, fv. bifreiðastjóri

9. Brynjar Vignir Sigurjónsson, handboltaþjálfari og sölumaður

10. Snorri Marteinsson, viðskiptafræðingur

11. Valborg Anna Ólafsdóttir, skrifstofustjóri

12. S. Vopni Björnsson, húsasmíðameistari

13. Alex Stefánsson, stjórnmálafræðingur

14. Ingibjörg Bernhoft, með master diplómu í jákvæðri sálfræði

15. Halldór Benony Nellet, fv. skipherra

16. Guðrún Hulda Ólafsdóttir, lögmaður og löggiltur fasteigna-, fyrirtækja- og skipasali

17. Böðvar Ingi Guðbjartsson, pípulagningameistari

18. Áslaug Guðmundsdóttir, kennari, M.Acc sérfræðingur

19. Þorleifur Andri Harðarson, leigubílstjóri og flotastjóri

20. Stefán Sveinn Gunnarsson, MBA stjórnun íþrótta

21. Unnar Ástbjörn Magnússon, vélsmiður

22. Þorvaldur Jóhannesson, stuðningsfulltrúi

23. Jóhann Kristinn Jóhannesson, markaðsstjóri

24. Haraldur Baldursson, véltæknifræðingur

25. Katrín Eliza Bernhöft, löggiltur fasteignasali

26. Haraldur Á. Gíslason, leiðsögumaður

27. Einar Baldursson, kennari

28. Sigrún Aspelund, fv. skrifstofumaður

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert