Ísland fordæmir ákvörðun Ísraels

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra.
Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra. mbl.is/Ólafur Árdal

Ísland fordæmir lagasetningu ísraelska þingsins sem mun koma í veg fyrir að Palestínuflóttamannaaðstoð Sameinuðu þjóðanna (UNRWA) geti starfað á Vesturbakkanum og Gasaströndinni.

Þetta kemur fram í skilaboðum sem utanríkisráðuneytið flytur á miðlinum X fyrir hönd Þórdísar Kolbrúnar R. Gylfadóttur utanríkisráðherra.

Segir hún að lagasetningin geti sett hættulegt fordæmi.

„UNRWA er hluti af Sameinuðu þjóðunum og störf stofnunarinnar, sem bjarga mannslífum, eru nauðsynleg milljónum palestínskra flóttamanna, þar á meðal á Gasa.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert