Magnús Karl vill verða rektor HÍ

Magnús Karl Magnússon prófessor.
Magnús Karl Magnússon prófessor. Ljósmynd/Háskóli Íslands

Magnús Karl Magnússon, prófessor í lyfja- og eiturefnafræði, býður sig fram til embættis rektors Háskóla Íslands. Hann greinir frá þessu í færslu á Facebook.

Jón Atli Bene­dikts­son, nú­ver­andi rektor, hyggst ekki sækj­ast eft­ir embætt­inu áfram þegar skip­un­ar­tíma hans lýk­ur í júlí á næsta ári.

„Eftir margra ára störf við Háskóla Íslands og áður við háskóla- og rannsóknastofnanir erlendis hef ég áhuga, reynslu og þekkingu til að leiða uppbyggingu rannsókna og kennslu á háskólastigi,“ ritar Magnús á Facebook.

„Ég bý einnig yfir miklum metnaði fyrir hönd Háskóla Íslands sem ég vil láta koma að notum. Ég hef því ákveðið að bjóða mig fram í embætti rektors Háskóla Íslands.“

Magnús hyggst m.a. leggja áherslu á að tryggja aukna fjármögnun skólans, beita embætti rektors af festu í umræðu um gildi háskóla fyrir samfélagið, efla innviði og bæta aðstöðu fyrir mannauð HÍ, endurskoða umgjörð rannsóknatengds framhaldsnáms á meistara- og doktorsstigi, efla rannsóknir, auka samstarf á milli deilda og fræðasviða og leita leiða til að draga úr vinnu nemenda með námi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert