Ásthildur Lóa Þórsdóttir, alþingismaður og kennari, mun leiða lista Flokks fólksins í Suðurkjördæmi, en listinn í heild sinni hefur nú verið kunngjörður.
Sigurður Helgi Pálmason, safnvörður og þáttagerðarmaður, skipar annað sætið, Elín Fanndal félagsliði og varaþingmaður, skipar það þriðja og Jónas Yngvi Ásgrímsson, stjórnarmaður hjá VR og miðstjórnarmaður ASÍ, skipar fjórða sæti listans.
Ásthildur Lóa, sem hefur setið á þingi fyrir flokkinn á yfirstandandi kjörtímabili, er 3. varaforseti Alþingis og situr í Efnahags- og viðskiptanefnd og Stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd. Þá hefur hún verið formaður Hagsmunasamtaka heimilanna frá 2017
Hér er Suðurkjördæmis í heild sinni:
- Ásthildur Lóa Þórsdóttir, alþingismaður og formaður Hagsmunasamtaka heimilanna, Garðabæ
- Sigurður Helgi Pálmason, safnvörður og þáttastjórnandi, Keflavík
- Elín Íris Fanndal Jónasdóttir, félagsliði, Þorlákshöfn
- Jónas Yngvi Ásgrímsson, stjórnarmaður VR og miðstjórnarmaður ASÍ, Skeiða- og Gnúpverjahreppi
- Anna Linda Sigurðardóttir, deildarstjóri Vallaskóla, Selfossi
- Vigfús Þórarinn Ásbjörnsson, smábátasjómaður og framkvæmdastjóri, Höfn í Hornafirði
- Sigrún Berglind Grétars, leikskólaliði, Keflavík
- Jórunn Lilja Jónasdóttir, öryrki, Eyrarbakka
- Guttormur Helgi Rafnkelsson, vélvirki, Hveragerði
- Dagbjört Eilíf Baldvinsdóttir, hönnunarstjóri, Selfossi
- Bjarni Aðalsteinn Pálsson, bakari, Keflavík
- Helga Jónsdóttir, mósaík listakona, Vestmannaeyjum
- Páll Bragi Hólmarsson, tamningamaður, Selfossi
- Inga Helga Fredriksen, öryrki, Vogum
- Ásta María Sigurðardóttir, stuðningsforeldri, Hvolsvelli
- Daði Þór Einarsson, tónlistarkennari, Þorlákshöfn
- Gunnþór Guðmundsson, eldri borgari, Keflavík
- Jón Þórarinn Magnússon, eldri borgari, Hellu
- Guðfinna Sigurgeirsdóttir, eldri borgari, Garði
- María G. Blómkvist Andrésdóttir, eldri borgari, Selfossi