Ferðamaður sem slasaðist þakkaði fyrir sig

Samsett mynd

Bandarískur ferðamaður sem slasaðist alvarlega í grennd við Gullfoss í september sendi starfsfólki Landspítalans nýverið hjartnæmt bréf og gjöf þar sem hann þakkaði fyrir sig.

Fram kemur í Facebook-færslu spítalans að Timothy Bradley hafi verið á mótorhjólaferð um hálendi Íslands með vinum sínum þegar hann datt og slasaðist alvarlega. Hann var fluttur á Landspítalann, þar sem bataferlið reyndist lengra en talið var í fyrstu. Hann þurfti að liggja inni á spítalanum í tvær vikur vegna sýkingar í lunga.

Starfsfólkið var hæstánægt með kaffibollana.
Starfsfólkið var hæstánægt með kaffibollana. Ljósmynd/Landspítalinn

„Til að sýna þakklæti sitt lét hann hanna sérmerkta kaffibolla með áletruninni „I saved Timothy“, eða „Ég bjargaði Timothy“, sem hann færði starfsfólki 12G að gjöf, ásamt sérvöldu súkkulaði frá Bandaríkjunum,“ segir í færslunni, þar sem Timothy er þakkað fyrir og óskað skjóts bata.

Timothy Bradley lá í tvær vikur á Landspítalanum.
Timothy Bradley lá í tvær vikur á Landspítalanum. Ljósmynd/Landspítalinn
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert