Matvælahluta á veitingastað á höfuðborgarsvæðinu var lokað eftir að lögreglan á höfuðborgarsvæðinu og Skatturinn fóru í síðustu viku í sameiginlegt eftirlit á þrjátíu matsölustaði í umdæminu til að kanna hvort öll tilskilin leyfi væru þar fyrir hendi, bæði er varðar reksturinn og starfsmenn.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu.
Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu var veitingastaðurinn ekki með leyfi með fyrir sölu á matvælum. Um er að ræða áfengisveitingastað í miðborginni sem tók upp á því að selja matvæli. Hann getur eftir eftir sem áður selt áfengi.
Í tilkynningu segir að en athugasemdum og ábendingum vegna nokkurra þátta hjá tilteknum matsölustöðum hafi verið komið á framfæri við heilbrigðiseftirlit og/eða eldvarnareftirlit.
Þá segir að lögregla hafi einnig farið í eftirlit á skemmtistaði.
„Það snýst sömuleiðis um að öll tilskilin leyfi sé fyrir hendi, en þá er m.a. kannað hvort dyraverðir staðanna sé með leyfi til að starfa sem slíkir en á því er nokkur misbrestur eins og heimsóknir lögreglunnar hafa sýnt.“
„Sérstaklega er líka kannað með aldur gesta á skemmtistöðum, en reglulega þarf að vísa á dyr ungu fólki sem hefur ekki aldur til að vera á vínveitingahúsum. Svo var einnig núna, en lögreglumenn höfðu þó á orði að ástandið í þeim efnum hefði verið með skárra móti að þessu sinni,“ segir í tilkynningu.