Þrír á slysadeild eftir árekstur við Húnaver

Þyrla gæslunnar flaug með þrjá á slysadeild í Reykjavík eftir …
Þyrla gæslunnar flaug með þrjá á slysadeild í Reykjavík eftir þriggja bíla árekstur við Húnaver í dag. mbl.is/Árni Sæberg

Þrír voru fluttir á slysadeild með þyrlu Landhelgisgæslunnar síðdegis í dag eftir árekstur þriggja bifreiða við Húnaver í umdæmi lögreglunnar á Norðurlandi vestra, að sögn vaktstjóra Landhelgisgæslunnar.

Lögreglan á Norðurlandi vestra greindi frá því á Facebook-síðu sinni að Þjóðvegi 1 hefði verið lokað í Vatnsskarði vegna slyssins en hefur nú greint frá því að vegurinn sé opinn umferð á nýjan leik.

„Vegfarendur eru beðnir um að fara að öllu með gát, hálka er á veginum og éljagangur,“ segir í lok síðari færslunnar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert