Dýrara að byggja á þéttingarreitunum

Uppbygging nýs fjölbýlishúss í Safamýri er hafin. Verklok eru áformuð …
Uppbygging nýs fjölbýlishúss í Safamýri er hafin. Verklok eru áformuð sumarið 2026. mbl.is/Baldur

Verið er að grafa grunn 40 íbúða fjölbýlishúss á horni Safamýrar og Háaleitisbrautar í Reykjavík en Bjarg íbúðafélag mun leigja íbúðirnar út.

Björn Traustason, framkvæmdastjóri Bjargs, segir áformað að afhenda íbúðirnar í júní 2026.

Húsið verður á horni Safamýrar og Háaleitisbrautar.
Húsið verður á horni Safamýrar og Háaleitisbrautar. Teikning/A2F og Gríma arkitektar

Bjarg sé að byggja sex íbúðir á Húsavík og fimm íbúðir á Hellu. Þá séu nokkur verkefni að hefjast hjá Bjargi. Hefja eigi uppbyggingu 30 íbúða í Reykjanesbæ í febrúar og uppbyggingu 83 íbúða á I-reit á Hlíðarenda í mars eða apríl.

Þá hyggist Bjarg hefja í vor uppbyggingu 24 íbúða í Mosfellsbæ, fimm íbúða á Flúðum og 28 íbúða á Akureyri. Enn fremur hyggist félagið hefja uppbyggingu 60 íbúða á Veðurstofuhæðinni í Reykjavík fyrir lok næsta árs.

Lesa má meira um málið í Morgunblaðinu í dag. 

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert