Harður árekstur varð við gatnamót Sæbrautar og Kirkjusands um hálftólfleytið í dag.
Að sögn varðstjóra hjá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu var sendiferðabíl ekið inn í hliðina á fólksbíl með þeim afleiðingum að báðir bílar skemmdust mikið, sérstaklega sá síðarnefndi.
Enginn var fluttur á slysadeild. Tveir voru í fólksbílnum en aðeins ökumaðurinn í sendiferðabílnum.
Ekki er vitað um tildrög óhappsins.