Tæknideild skoðar vettvang eldsvoðans

Myndatökumaður að störfum við fjölbýlishúsið þar sem eldurinn kviknaði.
Myndatökumaður að störfum við fjölbýlishúsið þar sem eldurinn kviknaði. mbl.is/Árni Sæberg

Tæknideild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu mun skoða vettvang eldvoðans sem varð í íbúð í Salahverfinu í Kópavogi í nótt.

Vinna fer strax í gang við að komast að upptökum eldsins. 

Þetta segir Sigrún Kristín Jónasdóttir, lögreglufulltrúi hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, spurð út í málið.

Fjög­urra manna fjöl­skylda var flutt á bráðamót­töku Land­spít­al­ans til skoðunar eft­ir að eld­urinn kviknaði í íbúðinni. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert