Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu barst tilkynning um slagsmál á skemmtistað í miðbænum í nótt.
Í dagbók lögreglu kemur fram að hnífur hafi verið dreginn upp og einn einstaklingur skorinn með honum.
Árásarmaðurinn fannst skömmu síðar og gistir nú í fangageymslu lögreglu.
Alls gistu þrír í fangageymslu klukkan 5 í morgun.
Þá barst lögreglunni tilkynning um ofurölvaðan einstakling sem var til vandræða á skemmtistað.
Þegar lögregla kom á vettvang og færa átti einstaklinginn í lögreglubifreið sparkaði hann í lögreglumann. Ekki er greint frá málalyktum.