„Fyrir fjórum árum sat ég í uppáhaldshorninu mínu heima og var að lesa bók þegar ég fór allt í einu að heyra hljóð í hausnum. Þetta reyndist miklu algengara fyrirbæri en ég vissi.
En í mínu tilviki kom það svo skyndilega og af svo miklum krafti að það sló mig algerlega út af laginu og eflaust var líka margt í mínum viðbrögðum sem magnaði vandann,“ segir Eiríkur Bergmann prófessor í stjórnmálafræði en hann þjáist af Severe Tinnitus Disorder eða Tínu eins og hann kallar það sjálfur, sem er, hljóð í höfði sem hann losnar ekki við.
Þessi kvilli sem skyndilega helltist yfir Eirík varð kveikja að bók sem hann sendir frá sér og nefnist Óvæntur ferðafélagi.
„Þetta er minningabók en líka dagbók sem ég hélt í glímunni við kvillann, frá örvæntingu til sáttar. Um tíma hélt ég í alvöru að lífi mínu væri lokið í allri merkingarbærri mynd, ég yrði bara aumingi,“ segir Eiríkur.
„Þetta var á covid-tímanum og mér fannst ég vera að lokast af alls staðar. Ég fékk mikla innilokunarkennd, fannst ég vera að lokast inni í eigin huga um leið og þjóðfélagið var að lokast. Ég flúði til Kanaríeyja með dóttur minni og var þar veturlangt og náði ágætum bata. Fór í jógahóp og alls konar furðulegt dót sem er mér framandi en það bjargaði mér í raun.“
Rætt er ítarlega við Eirík í sunnudagsblaði Morgunblaðsins.