Beint: Kynna aðgerðir í menntamálum

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir ráðherra á leið inn í Valhöll.
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir ráðherra á leið inn í Valhöll. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Sjálfstæðisflokkurinn hefur boðað til fundar í Grósku í dag þar sem hann kynnir aðgerðir sínar í menntamálum.

Á fundinum, sem hefst klukkan 11, flytja erindi þau Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, háskóla- iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, Hildur Sverrisdóttir, þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins, og Jón Pétur Zimsen aðstoðarskólastjóri sem skipar þriðja sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík suður.

Hér má fylgjast með beinu streymi frá fundinum:


„Í samfélagi sem byggir á jöfnum tækifærum er það óviðunandi að stór hluti barna hafi ekki grunnfærni í lesskilningi eftir tíu ára skyldunám. Afleiðingar slaks námsárangurs eru alvarlegar og m.a. þær að börn njóta ekki jafnra tækifæra. Smám saman molnar undan lýðræðinu og samkeppnishæfni okkar Íslendinga dalar - sem rýrir lífsgæði okkar allra. Þjóðir sem ná árangri í menntamálum búa við bestu lífskjörin - þar viljum við Íslendingar vera og þar getum við verið,“ segir í tilkynningu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert