Breiðholtsskóli og Hagaskóli fara áfram

Þátttakendur frá Hagaskóla á sviðinu í kvöld.
Þátttakendur frá Hagaskóla á sviðinu í kvöld. Ljósmynd/Anton Bjarni

Breiðholtsskóli og Hagaskóli komust áfram á úrslitakvöld Skrekks í kvöld. Átta grunnskólar tóku þátt í fyrsta undanúrslitakvöldinu sem fór fram í Borgarleikhúsinu í kvöld. 

Það voru Austurbæjarskóli, Breiðholtsskóli, Dalskóli, Fellaskóli, Hagaskóli, Landakotsskóli, Norðlingaskóli og Víkurskóli.

Í úrslit komust Breiðholtsskóli með atriðið Hraða lífsins og Hagaskóli með atriðið Stingum af.

238 ungmenni í Reykjavík tóku þátt í atriðunum í kvöld.

Í heildina er 721 þátttakandi í Skrekk í ár. 

Þátttakendur Breiðholtsskóli frá á sviðinu í kvöld.
Þátttakendur Breiðholtsskóli frá á sviðinu í kvöld. Ljósmynd/Anton Bjarni
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert