Guðni ráðinn framkvæmdastjóri Sinfóníuhljómsveitar Íslands

Guðni Tómasson, nýráðinn framkvæmdastjóri Sinfóníuhljómsveitar Íslands.
Guðni Tómasson, nýráðinn framkvæmdastjóri Sinfóníuhljómsveitar Íslands. Ljósmynd/Aðsend

Stjórn Sinfóníuhljómsveitar Íslands hefur ráðið Guðna Tómasson í stöðu framkvæmdastjóra Sinfóníuhljómsveitar Íslands frá og með 6. nóvember 2024. Ráðið er í starfið til fjögurra ára í senn.

Guðni er fæddur árið 1976, hann er með meistaragráðu í menningarstjórnun frá Háskólanum á Bifröst og meistaragráðu í listasögu frá St. Andrews háskólanum í Skotlandi. Hann tekur við starfinu af Láru Sóleyju Jóhannsdóttur sem gegnt hefur stöðu framkvæmdastjóra frá árinu 2019.

Var stjórnarformaður Sinfó

Segir í tilkynningu að Guðni hafi starfað við fjölmiðlun á menningarsviðinu frá því laust eftir aldamót, einkum við miðlun tónlistar- og menningarlífs hjá Ríkisútvarpinu, nú síðast sem menningarritstjóri.

Þá var Guðni stjórnarformaður Sinfóníuhljómsveitar Íslands á árunum 2010-2014, sat í stjórn Hörpu tónlistar- og ráðstefnuhúss á árunum 2019-2023 og var einnig formaður listráðs Hörpu 2022-2024.

Einnig var hann ráðgjafi mennta- og menningarmálaráðherra í menningarmálum 2012-2013 og formaður starfshóps um ritun menningarstefnu stjórnvalda sem samþykkt var 2013. Jafnframt hefur hann tekið að sér fjölmörg önnur ráðgjafar- og trúnaðarstörf í menningarlífinu.

Hinn heimsfrægi sellóleikari Yo-Yo Ma spilaði nýverið með Sinfóníuhljómsveit Íslands …
Hinn heimsfrægi sellóleikari Yo-Yo Ma spilaði nýverið með Sinfóníuhljómsveit Íslands í Eldborg. mbl.is/Karítas

„Fyrir hönd stjórnar býð ég Guðna Tómasson velkominn til starfa og hlakka til samstarfs við hann. Sinfóníuhljómsveit Íslands er í fremstu röð og þar er ákaflega öflugt starf sem landsmenn taka vel eftir. Undanfarin ár hefur hljómsveitin vaxið og hún hefur alla burði til þess að eflast enn frekar í samstarfi við framúrskarandi listamenn.

Áralöng reynsla Guðna af menningu mun sannarlega nýtast hljómsveitinni vel á komandi árum. Á sama tíma þökkum við Láru Sóleyju Jóhannsdóttur fyrir hennar framlag en hún hefur lagt mikið af mörkum til þess árangurs sem náðst hefur á undanförnum árum,“ segir Sigurður Hannesson, stjórnarformaður Sinfóníuhljómsveitar Íslands.

75 ára afmælisár fram undan

Sinfóníuhljómsveit Íslands er þjóðarhljómsveit stofnuð árið 1950. „Hún hefur um árabil verið í fremstu röð hljómsveita á Norðurlöndum og fengið afbragðs dóma jafnt fyrir hljóðritanir sínar sem og tónleika heima og erlendis.

Hljómsveitin býður upp á fjölbreytta dagskrá og heldur um 100 tónleika á hverju starfsári, m.a. áskriftartónleika með heimsþekktum stjórnendum og einleikurum. Auk þess heldur hljómsveitin úti metnaðarfullu barna-og fræðslustarfi og býður árlega þúsundum nemenda á skólatónleika,“ segir í tilkynningunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert