Utanríkisráðuneytið stendur fyrir sérstökum kjörfundum fyrir íslenska ríkisborgara búsetta á Spáni sem vilja kjósa í komandi alþingiskosningum.
Um er að ræða tvo kjörfundi, annars vegar í Torrevieja og hins vegar á Tenerife. Í tilkynningu frá ráðuneytinu segir að töluverður fjöldi Íslendinga dvelji á þessum stöðum til styttri og lengri tíma og að með kjörfundunum vilji ráðuneytið auka þjónustu við íslenska ríkisborgara á svæðinu.
Á Tenerife verður kosið dagana 17. og 18. nóvember og í Torrevieja 20. til 22. nóvember. Nánari staðsetningar og tímasetningar verða auglýstar síðar á Íslendingasíðum á Facebook segir enn fremur í tilkynningunni.
Taki kjósendur þátt í kjörfundum utanríkisráðuneytisins verður flutningur á atkvæði kjósenda til Landkjörstjórnar á ábyrgð ráðuneytisins, en sé kosið utan kjörfundar þá hvílir ábyrgðin á kjósandanum sjálfum að koma atkvæði sínu til Íslands.
Hægt verður að sækja vegabréf og/eða nafnskírteini á kjörfundi en bóka þarf slíkt fyrir fram.
Þá er kjósendum erlendis bent á að kanna hvort þeir séu á kjörskrá á vef Þjóðskrár.