Fjölnota hús KR loksins í útboð

Síðasti heimaleikur KR í ár var leikinn á Þróttarvellinum.
Síðasti heimaleikur KR í ár var leikinn á Þróttarvellinum. mbl.is/Hákon

Nýtt fjölnota íþróttahús KR við Frostaskjól verður boðið út á Evrópska efnahagssvæðinu í dag. Þetta staðfestir Eva Bergþóra Guðbergsdóttir samskiptastjóri Reykjavíkurborgar við Morgunblaðið. Auglýsing þess efnis var send á útgáfuskrifstofu EES á föstudag.

Kurr hefur verið í KR-ingum síðustu vikur vegna þess hve þetta útboð hefur dregist. Búist hafði verið við því að það myndi gerast í ágúst. Eva Bergþóra segir hins vegar að borgin hafi ekki fengið rétt gögn í hendur frá KR-ingum fyrr en 16. september.

„Þá gat vinna hafist við að rýna, breyta og bæta áður en gengið var frá útboðsgögnum,“ segir hún. Frestur til að skila inn gögnum í forvali er til 26. nóvember og eftir það taka við viðræður við valda verktaka.

Lesa má meira um málið í Morgunblaðinu í dag. 

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert