„Hér hefur engu verið hagrætt nema sannleikanum“

Hildur Björnsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins, gefur lítið yfir yfirlýsingar borgarstjóra um …
Hildur Björnsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins, gefur lítið yfir yfirlýsingar borgarstjóra um viðsnúning í rekstri. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Hildur Björnsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins í borgarstjórn, segir fullyrðingar borgarstjóra um sögulegar hagræðingar ekki standast skoðun. Það sé tálsýn að borgin sé ekki lengur rekin með halla, enda sé rekstrarafgangur háður því að Perlan seljist fyrir áramót, sem sé óskhyggja að hennar mati.

Frum­varp að fjár­hags­áætl­un Reykja­vík­ur­borg­ar fyr­ir árið 2025 og fimm ára tíma­bilið til 2029 er lögð fram í borg­ar­stjórn til fyrri umræðu í dag, en þar er gert ráð fyrir 1,7 millj­arða króna rekstr­araf­gangi á A-hluta borg­ar­inn­ar 2025.

Í útkomu­spá er gert ráð fyr­ir að rekstr­arniðurstaða árs­ins 2024 verði já­kvæð um 531 millj­ón króna sem sé um 5,5 millj­arða króna já­kvæður viðsnún­ing­ur frá fyrra ári. 

Einar Þorsteinsson borgarstjóri segir að rekja megi árangurinn til aðhalds og aðgerða til mæta hallarekstri í samræmi við megináherslur fjár­mála­stefnu Reykja­vík­ur­borg­ar sem sett hafi verið fram við upp­haf kjör­tíma­bils­ins.  

„Hvar eru þessar sögulegu hagræðingar?“

„Í dag á að bera á borð fyrir okkur þá tálsýn að borgin sé ekki lengur rekin með halla. Það sem meirihlutinn hins vegar forðast að nefna, og kom raunar ekki fram í dagsljósið fyrr en eftir ítrekaðar fyrirspurnir mínar, að allt hangir þetta á þeirri óskhyggju að Perlan seljist fyrir áramót“, er haft eftir Hildi í tilkynningu frá Sjálfstæðisflokknum.

Hún segir rétt að staldra við fullyrðingar borgarstjóra um að umfangsmiklar hagræðingaraðgerðir séu helsta ástæða þess að rekstrinum hafi verið snúið til betri vegar. Hagræðingarkrafa hafi verið sett á svið, draga hafi átt úr launakostnaði og nýjar ráðningarreglur innleiddar til að stemma stigu við starfsmannafjölgun.

„En var þessu fylgt eftir? Þegar tölurnar eru rýndar kemur í ljós að launakostnaður jókst um 7,2 milljarða milli ára og rekstrarkostnaður sömuleiðis um 5,3 milljarða. Starfsfólki hélt jafnframt áfram að fjölga, einna helst í yfirbyggingunni. Hvaðan sækir Einar þá viðsnúninginn? Hvar eru þessar sögulegu hagræðingar?“, spyr Hildur.

Útgjaldavandi, ekki tekjuvandi

Benti hún á að tekjur borgarinnar hefðu hækkað um 17,3 milljarða á milli ára, en vandi borgarinnar væri ekki tekjuvandi. Tekjurnar hefðu aukist stöðugt síðastliðinn áratug.

Um væri að ræða útgjaldavanda, enda hefði starfsmannafjöldi og rekstrarkostnaður aukist langt umfram lýðfræðilega þróun síðasta áratug.

„Fullyrðingar borgarstjóra um sögulegar hagræðingar standast enga skoðun. Hér hefur engu verið hagrætt nema sannleikanum“, segir Hildur.

Tímabært að horfast í augu við vandann

„Arðgreiðslur, tekjur af sölu byggingarréttar og ætlaður hagnaður af sölu Perlunnar nema 12,4 milljörðum króna í útkomuspá fyrir 2024. Ef þessara tekna nyti ekki við væri niðurstaðan af rekstri borgarinnar um 11,8 milljarða halli! Það blasir við að rekstur borgarinnar er fullkomlega ósjálfbær“, segir Hildur.       

Það sé löngu tímabært að horfast í augu við vandann, ráðast í hagræðingar, minnka yfirbygginguna og hefja skipulega niðurgreiðslu skulda. Samhliða þurfi að útvista fleiri verkefnum og láta af samkeppnisrekstri. 

„Einungis þannig náum við böndum á stjórnlausum rekstri,“ segir hún að lokum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka