Sekt vegna dulinna auglýsinga í LXS þáttum stendur

Þættirnir voru sýndir á Stöð 2.
Þættirnir voru sýndir á Stöð 2.

Hálfrar milljónar króna sekt sem Fjölmiðlanefnd lagði á Sýn hf. vegna dulinna auglýsinga og viðskiptaboða í sjónvarpsþáttunum LXS, um líf áhrifavalda í samnefndum hópi, stendur. Þetta er niðurstaða Héraðsdóms Reykjavíkur, en Sýn krafðist ógildingar á ákvörðun Fjölmiðlanefndar frá í fyrra.

Í dómi héraðsdóms kemur fram að í birtingu þáttanna hafi falist brot gegn bannákvæði í fjölmiðlalögum við duldum viðskiptaboðum og er rökum Sýnar í málinu þar með hafnað. Er því jafnframt hafnað að annað mál gegn RÚV, þar sem sektarheimild var ekki beitt, hafi verið sambærilegt þessu máli.

Þættirnir voru framleiddir af Ketchup Productions, en framkvæmdastjóri félagsins og leikstjóri þáttanna er Ingileif Friðriksdóttir fjölmiðlakona. Þætt­irn­ir fjalla um fimm vin­kon­ur sem lifa hinu ljúfa lífi og leyfa áhorf­end­um að skyggn­ast á bak við tjöld­in.

Alla daga í World class

Fjölmiðlanefnd lagði sektina á Sýn í júlí í fyrra, en hún hafði þá komist að þeirri niðurstöðu að nokk­ur inns­lög þátt­anna, um World Class, skart­gripa­merki, snyrti­vörumerki og bílaum­boðið Heklu, hafi falið í sér duld­ar aug­lýs­ing­ar. 

„Alla virka daga er ég á skrif­stof­unni í Laug­um. Ég og mamma erum sam­an með skrif­stofu og pabbi við hliðina á okk­ur,“ er haft eft­ir ein­um áhrifa­valdi, sem má ætla að sé Birgitta Líf Björns­dótt­ir, markaðsstjóri World Class, í úr­sk­urði nefnd­ar­inn­ar og talið að um­mæl­in feli í sér dulda aug­lýs­ingu.

Ingileif Friðriksdóttir framkvæmdastjóri Ketchup Productions.
Ingileif Friðriksdóttir framkvæmdastjóri Ketchup Productions.

Nær­mynd­ir af neong­ræn­um Skoda tald­ist til viðskipta­boðs

Þá var talið að innslag eins áhrifa­valds um vinnustaðinn sinn, bílaum­boðið Heklu, hafi tal­ist til dul­inn­ar aug­lýs­ing­ar: „Vel­kom­in í Heklu, í vinn­una mína. Hérna eyði ég mest­megn­is af mín­um dög­um þegar ég er ekki í skól­an­um. En ég er búin að vinna hérna í smá tíma með skóla og ætla aðeins að sýna ykk­ur hvað ég er að gera á dag­inn. Þannig að „lets go“.“

Í máls­at­vikakafla úr­sk­urðar­ins er litið til þess að einn áhrifa­vald­anna hafi sest inn í neon græn­an Skoda, sem sé einn af upp­á­halds­bíl­um hans í Heklu. Á meðan hann láti um­mæl­in falla séu sýnd­ar nær­mynd­ir af bíln­um frá nokkr­um hliðum. 

„Ég elska lit­inn, ég elska að keyra hann og ég er „a big representati­ve“ fyr­ir Skoda,“ seg­ir hann í innslag­inu.

Einnig er vísað til ummæla og umfjöllunar sem tengdust Reykjavík Makeup School og Glamista Hair, skartgripum frá 1104 by Mar og vörumerkið Marc Inbane sem heildverslunin Bpro selur.

Skylt að merkja viðskipta­boð

„Fjöl­miðlum er skylt að merkja viðskipta­boð og eiga þau að vera skýrt af­mörkuð frá ri­stjórn­ar­efni miðils­ins,“ seg­ir í úr­sk­urði Fjöl­miðlanefnd­ar, sem fékk málið á sitt borð eft­ir að ábend­ing barst Neyt­enda­stofu. Und­ir dul­in viðskipta­boð falla duld­ar aug­lýs­ing­ar, sem erfitt get­ur verið að greina.

Í dómi héraðsdóms segir að fallist verði á það með Fjölmiðlanefnd að það teljist ekki brot á tjáningarfrelsi að gerðar séu kröfur um að viðskiptaboð skuli vera merkt, enda sé slíkt forsenda þess að almenningur geti gert sér grein fyrir því hvort um sé að ræða ritstjórnarefni eða viðskiptaboð.

Sýn taldi hins vegar að eðli málsins samkvæmt vinni áhrifavaldarnir með ýmis vörumerki og hafi þau því komið fram í þáttunum þar sem fjallað er um líf þeirra, „enda hafi þau verið órjúfanlegur þáttur í söguþræði þáttanna, þar sem um sé að ræða einstaklinga sem hafi vakið athygli einmitt vegna þessa.”

Sagðist Sýn ekkert endurgjald hafa fengið fyrir umfjöllunina og að engin tengsl væru við umrædd vörumerki.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert