Borgarráð samþykkti í dag að gengið yrði til samningaviðræðna við Hilmar Ingimundarson vegna kaupa á Toppstöðinni í Elliðaárdal, en tilboð Hilmars hljóðaði upp á 420 milljónir kr.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Reykjavíkurborg.
Áður hefur verið greint frá að Landsvirkjun hafi boðið hæst í Toppstöðina en tilboð fyrirtækisins nam 725 milljónum kr.
Innihélt það tilboð hins vegar einnig tilboð í byggingarrétt og gatnagerðargjöld á sér lóð. Hljóðaði tilboð Landsvirkjunar í mannvirkið sjálft upp á 300 milljónir kr. og er því litið á Hilmar sem hæstbjóðanda í málinu.
Tilboð Hilmars var lagt fram fyrir hönd óstofnaðs félags, UUT.
„Tilboðin voru metin á grundvelli verðs annars vegar, sem taldi til 75 stiga og hinsvegar á grundvelli fyrirfram skilgreindra matsþátta sem töldu til 25 stiga. Tillaga UUT hlaut flest stig samkvæmt mati matsnefndar og er meðal annars talin falla vel að hugmyndum Reykjavíkurborgar um sjálfbærni, hönnun, kolefnislosun og önnur umhverfissjónarmið,“ segir í tilkynningu Reykjavíkurborgar.
Þá segir að samkvæmt tillögunni verði húsnæðið gert hæft fyrir útleigu og reist verði þar miðstöð útivistar sem geti hýst jaðargreinar íþrótta og aðra starfsemi sem stutt getur við eflingu útivistar og tómstunda í Elliðaárdal.
Áður hefur verið greint frá að Hilmar hafi unnið að því í meira en fimm ár að finna framtíðarhúsnæði fyrir Klifurfélag Reykjavíkur og önnur jaðaríþróttafélög á höfuðborgarsvæðinu.
Þá er áætlaður byggingartími frá undirritun samnings og afhendingu þrjú ár.
Í tilkynningu Reykjavíkurborgar kemur einnig fram að borgarráð hafi í dag heimilað að gengið yrði frá kaupsamningi við hæstbjóðanda, Reykjavík Development ehf. vegna kaupa á 125 bílastæðum í bílastæðakjallara Hörpu.
„Við söluna var viðhaft tveggja þrepa kerfi og bárust fimm tilboð á þrepi eitt en tvö á þrepi tvö. Kaldalón hf. bauð 750.000.000 krónur og Reykjavík Development ehf. 752.500.000 krónur. Eftir yfirferð tilboða er talið að tilboð Reykjavík Development ehf. sé hagstæðara hvað varðar fyrirvara í tilboði, greiðslutilhögun og fjárhæð,“ segir í tilkynningunni.
Þá standa yfir viðræður um sölu á Perlunni til Perlunnar þróunarfélags ehf, sem verið hefur leigutaki í Perlunni síðastliðin átta ár.
Perlan, ásamt tveimur tönkum, var auglýst til sölu í júlí síðastliðnum. Var söluferlinu skipt í tvö þrep og og kveðið á um að lágmarksverð væri 3,5 milljarðar króna.
Eftir að tveir aðilar skiluðu inn umsókn á fyrsta þrepi skilaði Perlan þróunarfélag ehf. Eitt inn tilboði á öðru þrepi en í kauptilboðinu var kveðið á um ákveðna fyrirvara sem eru nú til skoðunar.
Segir borgin að samningaumleitanir hafi gengið samkvæmt áætlun miðað við eðli og umfang söluandlagsins.