Stefnt er að því að brjóstaminnkunaraðgerðir og efnaskiptaaðgerðir bætist við kaup Sjúkratryggingja á lýðheilsutengdum aðgerðum á næstu árum.
Fram kemur á vef stjórnarráðsins að Sjúkratryggingar hafi lokið samningsgerð vegna lýðheilsutengdra aðgerða fyrir árið 2024. Samningarnir gilda til áramóta en samhliða er unnið að samningum til lengri tíma og er lagt upp með að samið verði þá til þriggja ára. Á það að tryggja fyrirsjáanleika og samfellu í þjónustu.
Lýðheilsutengdar aðgerðir eru ekki hluti af inngripum í fjölveikindi eða í bráðaástandi, heldur er um að ræða einskiptisaðgerð sem getur snúið viðkomandi einstaklingi aftur til heilsu og í samfélagslega virkni.
Samningarnir eru í takt við samþykkta heilbrigðisstefnu til ársins 2030 og eru liður í því að tryggja jafnt og tímanlegt aðgengi að heilbrigðisþjónustu.
„Hér er um að ræða aðgerðir sem hafa mikil áhrif á lífsgæði fólks. Markmiðið sem unnið hefur verið eftir er að tryggja sjúklingum jafnt og tímanlegt aðgengi að mikilvægri heilbrigðisþjónustu, óháð efnahag,“ er haft eftir Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra á vef Stjórnarráðsins. Hann bendir jafnframt á að samningar um lýðheilsutengdar aðgerðir hafi nýst vel og stuðlað að skilvirkari nýtingu alls heilbrigðiskerfisins og mannauðsins sem þar starfar.
Á árinu 2024 var samið um kaup á samtals 710 liðaskiptaaðgerðum á bæði hné og mjöðm, 190 kviðsjáraðgerðum vegna endómetríósu, 138 bakaðgerðum vegna brjóskloss og þrenginga í mænugöngum og allt að 840 augasteinsaðgerðum. Aðilar að samningum Sjúkratrygginga vegna aðgerðanna eru Stoðkerfi ehf., Klíníkin ehf., Cosan ehf. og Lentis ehf.