Endurskoða starfsleyfi bálstofu kirkjugarðanna

Dökkan reyk leggur frá bálstofunni þegar líkbrennsla fer fram.
Dökkan reyk leggur frá bálstofunni þegar líkbrennsla fer fram. Ljósmynd/Reykjarvíkurborg

Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur hefur ákveðið að endurskoða starfsleyfi bálstofu Kirkjugarða Reykjavíkur.

Ástæðan er sú að mengun frá starfseminni er meiri en búast mátti við þegar leyfið var gefið út í júní árið 2021, að segir í tilkynningu frá heilbrigðiseftirlitinu. 

Að lokinni endurskoðun verður tillaga að endurskoðuðum starfsleyfisskilyrðum auglýst á vefsvæði Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur í fjórar vikur. 

Á þeim tíma getur hver sem vill sent Heilbrigðiseftirliti Reykjavíkur athugasemdir.

Skólar og leikskólar við sömu götu

Foreldrar barna á leikskólanum Sólborg, sem staðsettur er beint á móti bálstofunni, hafa ítrekað kvartað yfir mengun frá starfseminni og sent inn tugi kvartana til heilbrigðiseftirlitsins síðustu mánuði. 

Við sömu götu eru einnig Gulahlíð, frístundaheimili fyrir fötluð börn, og Brúarskóli; sérskóli fyrir börn sem eiga í alvarlegum geðrænum-, hegðunar eða félagslegum erfiðleikum.

Formaður foreldrafélags leikskólans Sólborgar, Matthías Kormáksson, birti myndband á Facebook-síðu sinni í morgun sem sýnir hvernig dökkan reyk leggur frá bálstofunni yfir svæðið í kring. Hann skrifaði einnig grein um málið sem birtist á Vísi í gær. Þar segir hann meðal annars að mengun frá starfseminni sé hættuleg heilsu barnanna sem andi reyknum ofan í lungun.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert