Fyrsta rafræna ákæran gefin út

Nú er unnið að því að færa allar ákærur yfir …
Nú er unnið að því að færa allar ákærur yfir á rafrænt form auk allra birtinga ekki aðeins vegna umferðarlagabrota. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Í síðustu viku var fyrsta rafræna ákæran gefin út vegna umferðarlagabrota og í framhaldi var fyrsta rafræna fyrirkallið birt á stafrænu Íslandi. Unnið er að því að færa allar ákærur yfir á rafrænt form auk allra birtinga ekki aðeins vegna umferðarlagabrota.

Frá þessu er greint í tilkynningu lögreglunnar.

Ákærur og birtingar vegna umferðarlagabrota birtast nú í pósthólfi á Ísland.is. Þetta var hægt vegna breytinga á lögum um meðferð sakamála í sumar. Í þeim tilfellum sem það tekst ekki hefur lögregla tekið upp snjallforrit til þess að birta einstaklingum ákærur í persónu.

„Hingað til hafa ákærur ásamt skjalaskrám verið fluttar á pappír milli einstaklinga og stofnana. Markmiðið með þessari vegferð er að hætta að flytja fólk og pappír og gera gögn frekar aðgengileg með rafrænum hætti þegar þeirra er þörf. Það leiðir til lægri málskostnaðar, styttri málsmeðferðartíma, minna kolefnisspors og aukins gagnsæis fyrir alla aðila máls,“ segir í tilkynningunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert