Ofanflóðavakt Veðurstofu Íslands barst ábending um að mikið grjóthrun hafi orðið nú nýlega úr Óshlíð. Grjótið hafi fallið úr hlíðinni ofan vegarins, sem blessunarlega, var aflagður árið 2010 með opnun jarðganganna milli Hnífdals og Bolungarvíkur.
Lögreglan á Vestfjörðum greinir frá þessu.
Þar segir einnig, að þessi gamli og aflagði vegur um Óshlíð sé vinsæll sem útivistasvæði og því margir sem ganga, hlaupa eða hjóla þennan veg.
„Lögreglan á Vestfjörðum vill vara við ferðum á veginum meðan aukin grjóthurunshætta er, eins og þessa dagana.“