Innkalla lyftingasett fyrir börn

Leikfangið er frá leikfangaframleiðandanum Fischer price.
Leikfangið er frá leikfangaframleiðandanum Fischer price.

Hagkaup hefur ákveðið að innkalla leikfang frá FisherPrice í kjölfar upplýsinga um að það standist ekki öryggiskröfur gildandi reglugerða.

Um er að ræða leikfangasett sem inniheldur hluti sem geta losnað og valdið köfnunarhættu. Neytendur eru hvattir til að skila til Hagkaups eða farga vörunni.

Vöruheitið er Baby Biceps –Gift set og flytur Hagkaup sjálft leikfangið inn og hefur það verið til sölu í Skeifu, Kringlu, Akureyri, Spöng, Smáralind og Garðabæ. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert