Sigtryggur Sigtryggsson
Vegagerðin hefur boðið út gerð landfyllinga og sjóvarna vegna nýbyggingar brúarinnar Öldu yfir Fossvog. Verkið er hluti af 1. lotu Borgarlínu og uppbyggingu fyrir þróunarsvæði í Skerjafirði. Gera skal landfyllingar báðum megin Fossvogs.
Reykjavíkurmegin felur verkið í sér gerð um 2 hektara landfyllingar og 740 metra sjóvarna utan við núverandi strandlínu frá Skerjafirði í norðvestri að Kýrhamri í norðaustri.
Á Kársnesi felur verkið í sér gerð um 0,3 hektara landfyllingar utan við núverandi strandlínu með 220 metra af nýrri sjóvörn ásamt um 0,4 hektara fyllingum á landi. Verkið er samstarfsverkefni Vegagerðarinnar, Reykjavíkurborgar og Kópavogsbæjar.
Þetta er umfangsmikið verkefni. Þannig verður fyllingarefni 132.000 rúmmetrar (m3) og grjótvörn 48.500 m3. Komið hefur fram að á framkvæmdatímanum verði talsvert rask á svæðinu og gæta þurfi varúðar vegna nálægðar við flugvöllinn.
Nánar má lesa um málið í laugardagsblaði Morgunblaðsins.