Ekkert apótek í þremur hverfum

Fyrst voru boðaðar breytingar á húsnæði en síðan var Apótekaranum …
Fyrst voru boðaðar breytingar á húsnæði en síðan var Apótekaranum á Eiðistorgi lokað fyrir fullt og allt. mbl.is/sisi

Apótekum hefur fjölgað á höfuðborgarsvæðinu í ár. Þrátt fyrir það er ekkert apótek að finna í hverfi 107, Vesturbæ Reykjavíkur, 102 Reykjavík eða á Seltjarnarnesi, póstnúmeri 170.

Um 18 þúsund manns búa í þessum þremur póstnúmerum, ríflega níu þúsund í 107, tæplega fimm þúsund manns á Seltjarnarnesi og tæplega fjögur þúsund manns í 102 Reykjavík.

Eins og kom fram í Morgunblaðinu í vikunni hefur apóteki Apótekarans á Eiðistorgi nú verið lokað. Í því húsnæði hafði verið rekið apótek í rúma fjóra áratugi.

Kort/mbl.is

Ekkert apótek í hverfi 107 í nokkur ár

Á kortinu hér fyrir ofan má sjá hvernig dreifing apóteka er eftir hverfum og sveitarfélögum á höfuðborgarsvæðinu.

Athyglisvert er að ekkert apótek hefur verið í hinu eftirsótta hverfi 107 Reykjavík í nokkur ár. Vesturbæjarapótek var lengi rekið við Hofsvallagötu.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert