Gul viðvörun í gildi

Vindaspáin á landinu kl. 20 annað kvöld.
Vindaspáin á landinu kl. 20 annað kvöld. Kort/Veðurstofa Íslands

Gul viðvörun er í gildi vegna veðurs, en viðvörunin tekur til Breiðafjarðar, Vestfjarða, Stranda og Norðurlands vestra. 

Þetta kemur fram á vef Veðurstofu Íslands. 

Þar segir, að spáð sé sunnan hvassviðri eða stormi norðvestan til á landinu seinnipartinn á morgun og búast megi við snörpum vindhviðum við fjöll. Aðstæður geta orðið varasamar fyrir vegfarendur.

Veðurvefur mbl.is

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert