Myndir: Sex eldgos á einu ári

Eldgos í ágúst á þessu ári, það níunda á nokkrum …
Eldgos í ágúst á þessu ári, það níunda á nokkrum árum á Reykjanesskaga og það sjötta í Svartsengiskerfinu. mbl.is/Árni Sæberg

Kvika hefur brotið sér leið upp á yfirborðið sex sinnum frá því að hamfarirnar gengu yfir Grindavík 10. nóvember í fyrra.

Gosin eru rifjuð upp í 24 síðna sérblaði sem fylgdi Morgunblaðinu í gær, af því tilefni að ár er liðið frá hamförunum sem urðu til þess að þúsundir Grindvíkinga þurftu að yfirgefa heimili sín.

Eldgos braust út 18. desember norðan Grindavíkur.
Eldgos braust út 18. desember norðan Grindavíkur. mbl.is/Árni Sæberg

18. desember: Fyrsta eldgosið

Eftir tíðindalitlar vikur á Reykjanesskaga braust eldgos út við Stóra-Skógfell á Sundhnúkagígaröðinni að kvöldi mánudagsins
18. desember. Þegar landsmenn voru í óðaönn að gera allt klárt fyrir jólin hófst jarðskjálftahrina sem stóð yfir í um klukkustund áður en eldarnir kviknuðu á ellefta tímanum.

Eldgosið hófst af miklum krafti og var gossprungan margfalt stærri en þegar eldgos braust út við Litla-Hrút fyrr sama ár. Var upphaf eldgossins mun kraftmeira en í fyrri eldgosum á Reykjanesskaga.

Á fyrstu klukkustundunum stækkaði sprungan mjög hratt og var tæpa þrjá kílómetra norður af bænum.

Hús brunnu þegar glóandi hraun vall inn í bæinn að …
Hús brunnu þegar glóandi hraun vall inn í bæinn að norðanverðu. mbl.is/Árni Sæberg

14. janúar: Húsin brenna

Um klukkan þrjú aðfaranótt sunnudagsins 14. janúar tók skjálftavirkni að aukast mikið á Sundhnúkagígaröðinni. Á fjórða tímanum þá nótt var Grindavíkurbær rýmdur og á fimmta tímanum jókst virknin enn meira. Eldgos braust út við Hagafell þremur mínútum fyrir kl. 8 þann morguninn. Nú var virknin nær Grindavík og töldu sérfræðingar að jafnvel gæti gosið innan varnargarðanna sem reistir höfðu verið. Það raungerðist þennan dag.

Aftur var upphafið kraftmikið og teygðist hratt úr sprungunni. Hraunið náði Grindavíkurvegi fyrir hádegi og eftir hádegi var ljóst að það hafði rofið bæði heita- og kaldavatnslagnir sem liggja til Grindavíkur. Ný sprunga opnaðist við jaðar bæjarins um hádegisbil og náði hraunið þremur húsum við Efrahóp.

Þegar líða tók á mánudaginn 15. janúar dró úr virkni eldgossins. Aðfaranótt 16. janúar var eldgosinu lokið.

Hraun rauf í febrúar Njarðvíkuræðina sem sér Suðurnesjum fyrir heitu …
Hraun rauf í febrúar Njarðvíkuræðina sem sér Suðurnesjum fyrir heitu vatni. mbl.is/Kristinn Magnússon

8. febrúar: Njarðvíkuræð rofnar

Eldgos braust úr snemma morguns 8. febrúar milli Sundhnúks og Stóra-Skógfells. Upptök eldgossins voru á svipuðum stað og í desember. Fyrirvarinn var rétt rúmur hálftími áður en kvikan braust upp á yfirborðið.

Um fjórum klukkustundum eftir að eldgosið hófst náði hraun Grindavíkurvegi. Um hádegisbil náði hraunið Njarðvíkuræðinni, lögninni sem sá Suðurnesjum fyrir heitu vatni frá virkjuninni í Svartsengi.

Aftur dró hratt úr virkni eldgossins en síðdegis sama dag hafði hraun runnið lengst um 4,5 kílómetra frá sprungunni. Tveimur dögum frá því eldarnir kviknuðu var eldgosinu lokið.

Eldgos braust einnig út í mars og reyndist það lengsta …
Eldgos braust einnig út í mars og reyndist það lengsta í Svartsengishrinunni hingað til. mbl.is/Árni Sæberg

16. mars: Lengsta eldgosið

Kvikuhlaup fór af stað um klukkan átta laugardagskvöldið 16. mars og hófst eldgos ríflega 20 mínútur yfir átta það sama kvöld. Að þessu sinni voru upptökin milli Hagafells og Stóra-Skógfells, á svipuðum stað og í febrúar.

Hraun rann í suður, í átt að Grindavík. Var upphaf eldgossins kröftugra en upphaf nokkurs annars eldgoss á Reykjanesskaganum undanfarin ár.

Fór hraun yfir Grindavíkurveg og rann einnig í átt að Suðurstrandarvegi. 18. mars var virkni eldgossins orðin nokkuð stöðug og bundin við nokkra gíga og tóku þeir að hlaðast upp. Eldgosinu lauk í byrjun maí.

Eldgos braust út 29. maí. Sprengingar urðu við suðurenda gossprungunnar …
Eldgos braust út 29. maí. Sprengingar urðu við suðurenda gossprungunnar er kvikan komst í snertingu við grunnvatn. mbl.is/Eggert Jóhannesson

29. maí: Hraunkæling við Svartsengi

Um klukkan 11 að morgni hófst kvikuhlaup á Sundhnúkagígaröðinni og um tveimur klukkustundum síðar hófst eldgos. Braust kvikan upp á yfirborðið norðaustan við Sýlingarfell, á svipuðum slóðum og eldgosið hófst í mars.

Þegar leið á daginn minnkaði virkni eldgossins og um kvöldið hafði hægst verulega á hraunrennslinu frá sprungunni. Hraun flæddi í suðurátt, en mesta virknin var norðarlega á sprungunni.

Varnargarðarnir bægðu hraunrennslinu frá Grindavíkurbæ, en hraun fór þó enn á ný yfir Grindavíkurveg. 4. júní var virknin að mestu í einum gíg. 18. júní hafði hraun runnið í átt að virkjuninni í Svartsengi og tók Slökkvilið Grindavíkur, ásamt fleiri viðbragðsaðilum, til þess ráðs að kæla hraunið til að hægja á því.

Hraunið hafði þá byrjað að flæða örlítið yfir varnargarða sem reistir voru til að verja Svartsengi. 22. júní var lýst yfir goslokum.

Níunda eldgosið á Reykjanesskaganum hófst 22. ágúst.
Níunda eldgosið á Reykjanesskaganum hófst 22. ágúst. mbl.is/Eyþór Árnason

22. ágúst: Stærsta eldgosið

Skjálftavirkni fór að aukast um miðjan ágústmánuð og á tíunda tímanum að kvöldi fimmtudagsins 26. ágúst braust eldgos út að nýju á Reykjanesskaga.

Nú voru upptök eldsumbrotanna norðar, talsvert nær Reykjanesbraut en í fyrri gosum, og lengdist sprungan í norður. Samhliða eldgosinu mældust skjálftar og fundust þeir stærri í byggð á höfuðborgarsvæðinu.

Þegar mesti krafturinn var í upphafi gossins mældist gossprungan sjö kílómetrar að lengd. Dagana á eftir mældust nokkrir stærri skjálftar sem einnig fundust. Reyndist eldgosið vera það stærsta á Reykjanesskaga frá því í desember.

24 síðna sérblað fylgir Morgunblaðinu þar sem fjallað er um …
24 síðna sérblað fylgir Morgunblaðinu þar sem fjallað er um hamfarirnar 10. nóvember, upplifun Grindvíkinga og afdrif þeirra.
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert