Önnur aurskriða við Eyrarhlíð

Eyrarhlíð milli Ísa­fjarðar og Hnífs­dals.
Eyrarhlíð milli Ísa­fjarðar og Hnífs­dals. Kort

Önnur aurskriða féll á veginn um Eyrarhlíð fyrir skemmstu. Verður vegurinn því lokaður í kvöld og í nótt.

Frá því greinir lögreglan á Vestfjörðum á Facebook-reikningi sínum.

Ráðstafanir verða gerðar fyrir þá sem ekki komast til síns heima vegna lokunarinnar.

Er biðlað til almennings að spara símtöl til lögreglunnar þar sem mikið álag sé á símakerfum þeirra, enda mikilvægt að allar upplýsingar sem skipta máli geti borist hratt og örugglega.

Nánari upplýsingar verða settar á Facebook-reikning lögreglunnar á Vestfjörðum eftir því sem þær berast.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert