Sundlaugin í Grindavík opnuð á ný

Sundlaugin í Grindavík hefur verið opnuð á nýjan leik.
Sundlaugin í Grindavík hefur verið opnuð á nýjan leik. Ljósmynd/Grindavíkurbær

Sundlaugin í Grindavík hefur verið opnuð að nýju og fyrst um sinn verður hún opin tvisvar sinnum í viku.

Þetta var ákveðið á fundi bæjarráðs á dögunum og gildir samþykktin fram að áramótum. Þá verður staðan endurmetin.

Sundlaugin verður opin í fjóra klukkutíma í senn. Á mánudögum kl. 16-20 og á laugardögum kl. 10-14.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka