Einn fluttur á spítala eftir þriggja bíla árekstur

Einn var fluttur með sjúkrabíl af vettvangi til skoðunar á …
Einn var fluttur með sjúkrabíl af vettvangi til skoðunar á Landspítala. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Þriggja bíla árekstur varð á gatnamótum Miklubrautar og Háaleitisbrautar í dag. Einn bíllinn er óökufær eftir slysið.

Þetta staðfestir Jón Kristinn Valsson, varðstjóri hjá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu.

Einn var fluttur til skoðunar á Landspítala. Er hann ekki talinn alvarlega slasaður.

Einn bíll dreginn í burtu

Einn sjúkrabíll og einn dælubíll voru sendir á vettvang og hafa þeir þegar yfirgefið svæðið. Verið er að bíða eftir því að Krókur dragi einn bílinn burt.

Upplýsingar um tildrög slyssins liggja ekki fyrir. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert