Einn var fluttur á sjúkrahús eftir að Range Rover-jeppi hafnaði á hvolfi utan vegar skammt frá Leifsstöð fyrr í dag.
Þetta staðfestir vaktmaður Brunavarna Suðurnesja í samtali við mbl.is.
Ekki fengust frekari upplýsingar um slysið eða tildrög þess. Slökkviliðið er enn á vettvangi.