Vatnið í Bolungarvík aftur orðið eðlilegt

Vélar og tæki við hreinsun á Hnífsdalsvegi í gærmorgun.
Vélar og tæki við hreinsun á Hnífsdalsvegi í gærmorgun. mbl.is/Halldór Sveinbjörnsson

Allt bendir til þess að vatnið í Bolungarvík sé aftur orðið eðlilegt og hæft til matvælavinnslu og drykkjar.

Þetta kemur fram í tilkynningu á vef Bolungarvíkurbæjar.

Í gær kom fram að neysluvatnið í bænum væri mengað vegna leysinga.  

„Eftir að veðuraðstæður bötnuðu í gærkveldi og það hætti að rigna, breyttust aðstæður hratt í vatnsveitunni. Það minnkaði vatnið í lóninu og ástandið var viðráðanlegt,“ segir í tilkynningunni.

„Starfsfólk vatnsveitunnar var við vinnu fram á nótt og byrjaði snemma í morgun með góðum árangri. Allur síubúnaður virkar vel og er allt vatn geislað í samræmi við allar verklagsreglur.“

Fram kemur að stutt sé í næsta hvell og bærinn sé byrjaður að undirbúa sig til að tryggja vatnsgæðin.

Unnið verður náið með Heilbrigðiseftirliti Vestfjarða næstu daga í eftirliti og sýnatökum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka