Aukin tíðni strætóferða fyrir fleiri íbúa

Farþegum Strætó hefur fjölgað undanfarin ár.
Farþegum Strætó hefur fjölgað undanfarin ár. mbl.is/Árni Sæberg

Þegar áætlað er að fyrstu lotu borgarlínunnar verður lokið árið 2030 tekur nýtt leiðanet gildi í heild sinni. Þá verða 71% íbúa höfuðborgarsvæðisins í 400 metra radíus frá stoppistöð með 7 til 10 mínútna tíðni. 23% íbúa verða í 400 metra radíus frá stoppistöð með 7 mínútna tíðni á háannatíma.

Til samanburðar er staðan þannig núna að 16% íbúa höfuðborgarsvæðisins búa í 400 metra radíus frá stoppistöð með 10 mínútna tíðni á háannatíma.

Úr 16% í 50%

Með tilkomu nýs fjármagns vegna samgöngusáttmála eykst þjónusta Strætó strax á næsta ári þegar 50% íbúa höfuðborgarsvæðisins verða í 400 metra radius frá stoppiðstöð með 10 mínútna tíðni.

Þetta kom fram í erindi Valgerðar Grétu Benediktsdóttur, samgöngusérfræðingi hjá Strætó, á morgunfundi Vegagerðarinnar.

Nýtt leiðanet er heildstætt framtíðarskipulag almenningssamganga á höfuðborgarsvæðinu. Borgarlínuleiðir eru hluti af þessu nýja leiðaneti.

Skiptistöðin í Hamraborg.
Skiptistöðin í Hamraborg. mbl.is/sisi

Fimm leiðir hætta og þrjár koma í staðinn

Leiðanetið breytist eftir því sem framkvæmdum lýkur í kringum borgarlínuna. Með tilkomu Fossvogsbrúar árið 2028 munu leiðir 2, 8, 14, 35 og 36 hætta akstri. Í staðinn mun borgarlínuleið A hefja akstur ásamt leiðum N og O.

Árið 2040 munu leiðir A, B, E. C og D aka með 7 mínútna tíðni á háannatíma. Alls verða þá 51% íbúa í 400 metra radíus frá stoppistöð með 7 mínútna tíðni.

Farþegum Strætó fjölgað jafnt og þétt

Valgerður Gréta greindi frá því að farþegum Strætó hefði fjölgað jafnt og þétt frá Covid. Árið 2018 voru svokölluð innstig um 11.400 talsins, árið 2020 fóru þau niður í 8.800 vegna Covid og í fyrra voru þau komin upp í um 12.600 talsins.

Fjöldi ekinna kílómetra hjá Strætó hefur aftur á móti fækkað vegna þjónustuskerðingar síðastliðin ár.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka