Samtök fyrirtækja í fjármálaþjónustu ásamt Samtökum atvinnulífsins standa fyrir morgunfundi fimmtudaginn 14. nóvember undir yfirskriftinni Leiðir til að lækka vexti.
Á fundinum verða rætt um hvaða leiðir séu færar til að stuðla að lægra vaxtastigi hér á landi til framtíðar.
Hægt verður að fylgjast með fundinum í beinu streymi hér fyrir neðan. Hann hefst kl. 9 og stendur til kl. 11.
Gunnar Haraldsson hagfræðingur mun kynna niðurstöður úttektar ráðgjafafyrirtækisins Intellecon um þróun starfsumhverfis fjármálaþjónustu á Íslandi undanfarin ár, ásamt skattspori fjármálageirans og ræðir niðurstöðurnar í samhengi við yfirskrift fundarins.
Benedikt Gíslason, bankastjóri Arion banka.
Már Guðmundsson, fyrrverandi seðlabankastjóri.
Fulltrúar stjórnmálaflokka sem eru í framboði til Alþingis munu jafnframt ræða sína framtíðarsýn fyrir fjármálaþjónustu hér á landi næstu árin.
Marínó Örn Tryggvason, hjá Arma Advisors og fyrrverandi forstjóri Kviku banka, mun stýra pallborðsumræðunum.
Heiðrún Jónsdóttir, framkvæmdastjóri SFF, verður fundarstjóri.