Eldur í flugvél á æfingunni

Björgunarfólk á æfingu á flugvelli. Slíkar eru haldnar reglulega, þar …
Björgunarfólk á æfingu á flugvelli. Slíkar eru haldnar reglulega, þar sem lögregla, slökkvilið, björgunarsveitir og hjúkrunarfólk taka þátt. Ljósmynd/ISAVIA

Flugvél með eld í hreyfli hlekkist á við lendingu og brotlendir svo eldur brýst út. Hundrað manns sem eru um borð í vélinni sakar.

Þetta er sviðsmyndin sem unnið verður samkvæmt í flugslysaæfingu sem haldin verður á Keflavíkurflugvelli næstkomandi laugardag, 16. nóvember. Isavia og almannavarnadeild ríkislögreglustjóra standa að æfingunni, sem reglum samkvæmt er haldin þriðja til fjórða hvert ár.

„Þetta er verkefni sem kallar á viðamikinn og flókinn undirbúning, enda þótt komin sé ágæt reynsla í því að setja upp svona verkefni. Alls koma um 400 manns hið minnsta að æfingunni; um 100 manns leika þolendur en hitt eru viðbragðsliðar til dæmis frá flugvellinum, slökkviliði, lögreglu, björgunarsveitum, Rauða krossinum, Landhelgisgæslunni og fleirum,“ segir Elva Tryggvadóttir, verkefnisstjóri neyðarviðbúnaðar hjá Isavia.

Nánar í Morgunblaðinu í dag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert