Fimm fulltrúar biðjast lausnar vegna álags og áreitis

Þorgeir Pálsson oddviti fer mikinn í bókun á síðasta fundi.
Þorgeir Pálsson oddviti fer mikinn í bókun á síðasta fundi. mbl.is/Sigurður Bogi

Þrír sveitarstjórnarfulltrúar í sveitarstjórn Strandabyggðar báðust í gær lausnar frá störfum, en áður höfðu tveir fulltrúar beðist lausnar. 

Að minnsta kosti fjórir þeirra biðjast lausnar vegna mikils álags og áreitis sem fulltrúarnir hafa orðið fyrir í starfi sínu, segir meðal annars í langri bókun Þorgeirs Pálssonar oddvita, sem sjálfur fer í ótímabundið veikindaleyfi á morgun.

„Endalausar ásakanir og niðurrif“

Allir lögu þeir upp með að gera vel fyrir sitt sveitarfélag. Allir lögðu þeir sig fram um að bæta og efla samfélagið. Allir lögðu þeir sig fram af heilindum og sannfæringu fyrir því að þeir væru að vinna rétt og vel fyrir Strandabyggð og íbúa þess. Allir höfðu þeir hagsmuni allra íbúa sveitafélagsins að leiðarljósi í sinni vinnu,“ segir í bókuninni.

„En það dugði ekki til. Endalausar ásakanir, niðurrif og nú síðast kom fram á síðasta sveitarstjórnarfundi bókun tveggja sveitarstjórnarmanna um að þeir hefðu fengið hótanir vegna starfa sinna í sveitarstjórn. Þetta hefur nú leitt til þess að þessir fulltrúar sjá sér ekki fært lengur, sín og fjölskyldna sinna vegna, að starfa í sveitarstjórn fyrir Strandabyggð. Þessi framkoma í garð kjörinna fulltrúa í sveitarstjórn er með öllu ólíðandi og á sér fá ef nokkur fordæmi,“ segir þar jafnframt.

Ekkert grín að misnota málfrelsið

Þorgeir segir mikilvægt að hafa það í huga að fulltrúarnir voru lýðræðislega kjörnir í sveitarstjórn Strandabyggðar í kosningum árið 2022 og niðurstöður hafi verið afgerandi. Árásir á fulltrúana fimm séu því um leið árásir á lýðræðið og á starfsfumhverfi lýðræðislega kjörinna fulltrúna

„Það er ekkert grín að misnota málfrelsi og rétt sinn til málflutnings í sveitarstjórn á þann hátt að draga þar sífellt inn til umræðu, mál sem eiga þar ekki heima. Mál sem höfðu þann tilgang einan að gera þessa og aðra fulltrúa meirihlutans og þeirra ákvarðanir fyrir samfélagið, tortryggilegar, draga úr trúverðugleika og skemma málefnalega vinnu.“

Umhverfi litað af heift og ofbeldi 

Hann segir fólk hafa verið sakað um frændhygli í samningum við verktaka. Þá hafi því verið opinberlega haldið fram að oddviti hafi sakað einstakling í samfélaginu um að hafa stolið tugum milljóna úr sjóðum sveitarfélagsins, svo dæmi séu tekin. Hvoru tveggja séu grafalvarlegar ásakanir, sem uppfylli öll skilyrði málsóknar, kjósi menn svo

„Er þetta eðlilegt starfsumhverfi? Nei. Þetta er umhverfi litað af heift og ofbeldi og á ekkert skylt við málefnalega gagnrýni eða eðlilegan pólitískan ágreining um stefnu eða áherslur. Þetta er í raun ein tegund ofbeldis og það er mikilvægt að allir sem þetta lesa, skilji alvarleika þessa máls. Gerendurnir eru þekktir og þetta mun verða þeim til ævarandi skammar og minnkunar.“

Ljóst er að mikið hefur gengið á í sveitarstjórninni, en Matthías Sævar Lýðsson, úr A-lista Almennra borg­ara, lagði fram vantrauststillögu á hendur oddvitanum þann 8. október síðastliðinn. Tillagan var hins vegar felld með tveimur atkvæðum gegn þremur. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert