Tveir fluttir á slysadeild eftir árekstur

Gunnlaugur Jónsson, aðstoðarvarðstjóri slökkviliðsins, segir áreksturinn ekki hafa verið alvarlegan.
Gunnlaugur Jónsson, aðstoðarvarðstjóri slökkviliðsins, segir áreksturinn ekki hafa verið alvarlegan. mbl.is/Eggert

Tveir bílar lentu í árekstri á Bústaðavegi í kvöld.

Þetta staðfestir Gunnlaugur Jónsson, aðstoðarvarðstjóri slökkviliðsins á höfuðborgarsvæðinu.

Hann segir áreksturinn ekki hafa verið alvarlegan en að báðir bílstjórar hafi verið fluttir á sjúkrahús til athugunar.

„En þetta var frekar minniháttar.“

Áreksturinn átti sér stað á ellefta tímanum í kvöld skammt frá Veðurstofu Íslands.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert