Vara við hættulegum og gölluðum vörum

Vöruvaktin frá vinstri: Regína Valdimarsdóttir frá HMS, Edda Lína Gunnarsdóttir …
Vöruvaktin frá vinstri: Regína Valdimarsdóttir frá HMS, Edda Lína Gunnarsdóttir frá Geislavörnum ríkisins, Hafliði Gunnar Guðlaugsson frá ÁTVR, Hjalti Pálmason frá Fjarskiptastofa, Jana Rós Reynisdóttir frá Lyfjastofnun, Ísak Sigurjón Bragason frá Umhverfisstofnun og Herdís Björk Brynjarsdóttir frá HMS. Ljósmynd/Aðsend

Nýr vefur sem nefnir Vöruvaktin hefur verið opnaður og mun hann nýtast neytendum til að varast hættulega og gallaðar vörur. Á vefnum má finna ítarlega upplýsingar um til dæmis hættuleg raftæki, leikföng og öryggisbúnað barna sem búið er að vara við að kaupa.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Vöruvaktinni.

Segir þar að Húsnæðis- og mannvirkjastofnun, ÁTVR, Geislavarnir ríkisins, Neytendastofa, Fjarskiptastofa, Samgöngustofa, Umhverfisstofnun, Lyfjastofnun og Vinnueftirlitið standa að Vöruvaktinni.

Miða til neytenda upplýsinga um öryggi

„Eftirlit með því að vörur uppfylli þær kröfur sem gerðar eru hér á landi er í dag í höndum níu ólíkra eftirlitsstofnana. Hver stofnun er með sérþekkingu á viðkomandi sviði en Húsnæðis- og mannvirkjastofnun (HMS) ber ábyrgð á samræmingu alls markaðseftirlits í landinu í samvinnu við hinar stofnanirnar. Á grundvelli þessarar samvinnu hafa eftirlitsstofnanirnar níu nú sameinast um einn vettvang til að miðla til neytenda upplýsingum um öryggi og gera þeim kleift að sneiða hjá hættulegum vörum,“ segir í tilkynningunni.

Þá kemur fram að með tilkomu Vöruvaktarinnar sé auðveldara en áður fyrir neytendur að finna allar slíkar upplýsingar á einum stað og einnig geti almenningur í gegnum Vöruvaktina komið á framfæri eigin ábendingum um hættulegar eða ólöglegar vörur.

Regína Valdimarsdóttir kynnti vefinn í morgun.
Regína Valdimarsdóttir kynnti vefinn í morgun. Ljósmynd/Aðsend

TikTok nýst vel

Regína Valdimarsdóttur og Herdís Björk Brynjarsdóttir hjá HMS kynntu vefinn á fundi í HMS í morgun og tók einnig til máls forstjóri Umhverfisstofnunar, Auður Ingólfsdóttir.

Kom þar fram að mikilvægt væri að stjórnvöld myndu mæta neytendum þegar kæmi að fræðslu og upplýsingagjöf og nefndi Auður að miðillinn TikTok hafi t.a.m. nýst stofnuninni vel við að ná til fólks og gera það meðvitað um hættuleg efni sem geti leynst í ýmsu sem við notum og neytum.

Auður Ingólfsdóttir, forstjóri Umhverfisstofnunar, tók einnig til máls.
Auður Ingólfsdóttir, forstjóri Umhverfisstofnunar, tók einnig til máls. Ljósmynd/Aðsend

Innihalda krabbameinsvaldandi efni í sumum tilfellum

„Talsverð eftirspurn virðist vera eftir upplýsingum um skaðleg efni og óáreiðanlega framleiðendur. Reglulega fer fram umræða í Facebook-hópum hér á landi um hættuleg efni í vörum og vörur sem ekki standast ítrustu kröfur um öryggi. Nærtækt er að nefna stór vefsölutorg utan EES-svæðisins, svo sem Temu og Shein, sem selja föt, leikföng og aðrar vörur beint til neytenda hérlendis.“

Segir í tilkynningunni að vörur sem eru keyptar frá þessum sölutorgum hafa í sumum tilfellum reynst innihalda krabbameinsvaldandi efni og með Vöruvaktinni geti fólk á einfaldan hátt kannað öryggi vöru áður en gengið er frá kaupum.

Forsíða Vöruvaktarinnar.
Forsíða Vöruvaktarinnar. Ljósmynd/Aðsend
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert