Við urðum að byrja upp á nýtt

Valdís Guðmundsdóttir og Hjörtur Már Gestsson heima á Álftanesi með …
Valdís Guðmundsdóttir og Hjörtur Már Gestsson heima á Álftanesi með börnunum, þeim Braga Frey og Áslaugu Líf. mbl.is/Sigurður Bogi

Á Álftanesi hefur mikið verið byggt á síðustu árum, til dæmis rað- og fjölbýlishús, og á síðustu mánuðum hefur fjöldi Grindvíkinga einmitt fest sér íbúðir þar.

„Álftanesið er svolítið eins og sveit: hér er allt mátulega stórt og samfélagið gott. Þetta minnir um margt á Grindavík, þar sem við fjölskyldan áttum góðan tíma og ætluðum að vera þar. Svo breyttist allt og þá urðum við bara að byrja upp á nýtt,“ segir Valdís Guðmundsdóttir.

Þau Valdís og Hjörtur Már Gestsson eiginmaður hennar fluttu með börnunum sínum tveimur, átta ára tvíburum, til Grindavíkur árið 2019.

24 Grindavíkurbörn í skólanum

„Áslaug Rós systir mín og Tómas Guðmundsson maður hennar, sem er Grindvíkingur í húð og hár, og við Hjörtur fórum saman í að byggja parhús við Víkurhóp.

Þetta var mjög skemmtilegt verkefni og húsið var nánast tilbúið þegar ósköpin dundu yfir,“ segir Valdís, sem er hjúkrunarfræðingur að mennt. Hún starfaði á heilsugæslustöðinni í Grindavík en síðan á sama vettvangi í Reykjanesbæ.

Hjörtur er verkfræðingur, var byggingafulltrúi í Grindavík en hefur nú snúið sér að rekstri eigin fyrirtækis og sinnir þar teikningu og hönnun lagna og loftræstikerfa.

Fluttu inn í september

Fyrst eftir að Grindavík var rýmd fengu Valdís og fjölskylda hennar inni hjá ættmennum sínum á höfuðborgarsvæðinu. Þá máttu þau sátt þröngt sitja um sinn.

Þau fengu svo íbúð hjá leigufélaginu Bríet í Vogum á Vatnsleysuströnd og voru þar frá í byrjun þessa árs fram í september síðastliðinn. Höfðu þegar þar var komið sögu fest kaup á fokheldri íbúð í raðhúsi við Víðiholt á Álftanesi.

„Þarna erum við systurnar aftur nágrannar og líkar vel. Íbúðina fengum við í mars síðastliðnum, sumarið tókum við í fráganginn og fluttum svo inn í september. Og boltinn er aftur farinn að rúlla; fólk fer í vinnu og börnin í skóla. Í Álftanesskóla byrjuðu í haust 24 börn sem áður voru í Grindavík; svipaður fjöldi og er í einni bekkjardeild.“

Viðtalið má lesa í heild sinni í sér­blaði Morg­un­blaðsins um ham­far­irn­ar í Grinda­vík 10. nóv­em­ber.

24 síðna sérblað fylgdi Morgunblaðinu þar sem fjallað er um …
24 síðna sérblað fylgdi Morgunblaðinu þar sem fjallað er um hamfarirnar 10. nóvember, upplifun Grindvíkinga og afdrif þeirra.
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert