Svikaalda sem tengist rafmyntum herjar á Íslendinga. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu varar við svikunum á samfélagsmiðlum í dag.
Lögregla segir fjölmörg fjársvikamál hafa komið upp þar sem landsmenn eru blekktir í síma eða skilaboðum í netheimum til að kaupa rafmyntir í gegnum vefinn.
Varar lögregla almenning við og bendir á að um sé að ræða svik sem séu hluti af skipulagðri glæpastarfsemi.
„Gjarnan er hringt í fólk úr íslenskum símanúmerum jafnvel þó sá sem hringi tali ensku og fólki haldið þar á spjalli á meðan svikin fara fram.
Jafnvel þó íslensk símanúmer séu notuð er viðkomandi aðili ekki staddur á Íslandi,“ eins og segir í færslu lögreglu sem leggur upp með nokkrar góðar reglur fóki til handa:
Ef ókunnugur biður um að fólk fari inn á ókunna síðu með rafrænum skilríkjum sínum segir lögregla eina tilganginn að yfirtaka síma og heimabanka fólks.
„Eftir að búið er að færa fé í kauphöll fyrir rafmyntir á netinu er ómögulegt fyrir lögreglu eða fjármálastofnanir að endurheimta það fé.“